Tilkynning um fjarveru meðlims
Góðan daginn allan daginn.
Ég verð því miður að boða forföll mín í komandi sumarbústaðarferð veiðifélaganna Herkúles og Bleikjurnar. Ég veit að þetta er mikið áfall fyrir suma, en reynið að skemmta ykkur án mín. Sennilega er það ómögulegt en reynið allavega. Gerið það fyrir börnin. Hahaha nú er ég bara farin að bulla. Þið munið skemmta ykkur mjög vel og það verða allir að drekka einn bjór fyrir mig. Það myndi verma mínar dýpstu hjartarætur ef þið myndum skála fyrir formanni Vestfjarðardeildar sem gat á engan hátt séð sér fært að mæta sökum íþróttaiðkunnar. Ég er að fara leika afar mikilvægan leik í körfuknattleik gegn Hamri/ Selfossi. Svona er nú lífið. En ég óska ykkur mikillar gleði, mikillar ölvunar og einhvers skandals. Þessar ferðir okkar verða alltaf að innihalda einhvern skandal.
Ég kveð að sinni.
Hafdís Gunn
Formaður Vestfjarðadeildar Bleikjanna

