fimmtudagur, október 28, 2004

Er karlmennskan horfin?

Hvað hefur orðið um vini vora í félagi Herkúlesar?
Ég bara spyr, þeir uppfæra ekki heimasíðuna sína eða setja inn veiðisögur sumarsins!!
Mig grunar að karlmennska þeirra sé horfin og þeir þori ekki að viðurkenna það og sitja núna heima hjá sér með kakó undir heitri sæng og ætli að láta okkur konurnar sjá um alla veiðimennskuna. Ég vil reyndar nefna það að ég sló þeim Herkúles félögum Dodda og Tóta ref fyrir rass í sumar og dró á land einn vænan lax!! Já, þetta er greinilega allt að fara í hundana hjá þeim.......
Ef þeir vilja sanna sig þá mega þeir fara að byrja að skrá sig í sumarbústaðaferðina, því ef ég þekki okkur öll rétt þá verður tekið hressilega á því þar og þá fá þeir tækifæri til að sýna karlmennsku sína!!
Þið getið skráð ykkur með því að skrifa hér í kommentin ja eða bara senda mér eða hjúkku netpóst.
Mér þykir leitt að hæstvirtur meðlimur Hafdís Gunnarsdóttir er ekki komin hérna inn, en það er vegna tæknilegra örðugleika, verður gerð bót á því fljótlega.
Já skráið ykkur í sumarbústaðaferðina!!!!!!!
Ég lofa góðri ferð og Tóti minn við lofum að vera stilltari en síðast!!
SKRÁ SIG þeir sem vilja koma með
Verið þið blessuð og góða helgi!

fimmtudagur, október 07, 2004

Þá er það ákveðið!

Jæja gott fólk!
Vegna mikilla anna undanfarin misseri hefur okkur ekki gefist tími til að pára hérna inn á þessa síðu en nú er ég reyna að taka mig á!

Nýjustu fréttir eru þær að fyrihuguð sumarbústaðarferð hefur verið flutt til, vegna gífurlegs álags sem hvílir á félögum og meðlimum helstu og bestu veiðifélaganna.
Það var ætlunin að fara núna í byrjun nóvember en það var ekki hægt.

Það verður farið að Úlfljótsvatni þann 21.janúar á föstudegi og komið heim 23.jan.
Þessi ferð er ætluð meðlimum Bleikjanna og Herkúlesar og jafnvel einhverra góðkunningja sem vilja slæðast með. Sýnið áhuga ykkar í athugasemdum eða gestabókinni.
Minni ég líka á það að hægt er að biðja um inngöngu í félagið með því að biðja fallega í gestabókinni eða með því að senda mér eða Ofurhjúkku e-mail.
Takk fyrir og kveð ég að sinni með von um góð viðbrögð við þessari ákvörðun.
Bless