Bústaðarferð!
Jæja þá er búið að finna bústað eftir langa og stranga leit!! Ætlunin var að fara á Arnarstapa til að fólk vestan af fjörðum þyrfti ekki að keyra eins langt en það eina sem var í boði var bústaður í Húsafelli!
Dagsetningin var eitthvað að vefjast fyrir fólki líka en eina sem kom í raun til greina var síðasta helgin í janúar 27-29.Eitthvað verður víst um nýja félaga í þessari ferð og verða sennilega þá þreytt einhver inntökupróf og þau eru alltaf skemmtileg!
Hlakka til að sjá alla


4 Comments:
jahú ég hlakka svo til....
alltaf gaman að vera í góðra vina hóp í sumarbústað, sérstaklega ef það er heiti pottur á staðnum til að sýna aukakílóin eftir jólin... hvernig væri að hafa keppni????
Hey..ég kíki alltaf hingað inn reglulega, gleymi bara að kvitta..væri til í að fara í sumarbústað með ykkur, assskottti held ég að það verði ógeðslega gaman hjá ykkur.
er líka orðin ekkert smá spennt.. verður óg.... gaman að hitta alla veiðifélagana á nýju ári, eða allaveganna þá sem mæta :-)
Ég hlakka til!
Skrifa ummæli
<< Home