laugardagur, janúar 29, 2005

Ég er mætt á svæðið

Jæja þá vestfjarðardeild bleikjanna komin með aðgang að síðunni. Ég er að fara hitta hugsanlega verðandi meðlimi félagsins í kvöld og mun ég meta þá af kostgæfni. Ég mun síðan láta æðstubleikjurnar vita hvort að þessar stelpur séu þess verðugar að fá að þreyta bleikjuprófið. Þær sem ég mun meta í kvöld eru Kristín Hulda, Sunna og Heiða. Ég mun skrá hérna inn niðurstöður matsins og verður mál þeirra tekið fyrir á næsta ársfundi félagsins.

fimmtudagur, janúar 13, 2005

Styttist óðum...

í sumarbústaðaferðina. Fólk er farið að rifja upp ferðina frá því 2003 með gleði í hjarta (sumir meira en aðrir) en ekki er hægt að neita því að sumt er ekki rifjað upp.. hehe.
Bjarki mágur er svo spenntur yfir því að fá KANNSKI inngöngu í félagið að hann leggur sig allan fram til að heilla herkules félagana. Mætti í partý á laugardaginn bara með bjór í lítersdósum, svo er hann búinn að liggja sveittur í símanum til að reyna að redda okkur skoðunarferð í ljósafossvirkjun þegar við förum í bústaðinn. Ég trúi ekki öðru en að hann fái inngöngu í félagið eftir að hafa þreytt ingöngupróf.
Við félagsmenn bleikjanna erum hins vegar sveittar yfir því að búa til inngöngupróf fyrir Þóru sem sótt hefur um að ganga í félagið, ákveðið hefur verið að láta hana vaða eld og brennistein ásamt öðru sem á örugglega eftir að skilja eftir ör á líkama og sál, hehe.

Annars vildi ég bara skrifa smá línu, virðist ekki vera mikið í gangi hér á síðunni...

Þangað til næst,
Hasta la vista babí