Vetrardagskrá
Komið sæl og blessuð!
Takk fyrir samveruna í Veiðivötnum þetta var mikið gaman og lang flestir veiddu eitthvað sem er alltaf gott!
Hæstvirta bleikja Hafdís Gunn er líka komin í hnapphelduna sem er mikið gaman og þó að Bleikjurnar séu harðar af sér,voru felld nokkur tár í tilefni þess!
Við þökkum henni fyrir frábæra veislu og fyrir að vera svona fín stelpa. Kannski er lítil bleikja á leiðinni......??? he he he
Þá að öðrum málefnum
Ég er komin með hugann langt fram í tímann eins og venjulega og er farin að spá í hinni árlegu sumarbústaðaferð okkar Bleikjanna og Herkúlesar.
Hvert skal fara?
Hvenær á að fara, fyrir eða eftir áramót?
Hvernig líst ykkur á að mætast á miðri leið, til dæmis finna bústað á Snæfellsnesi svo Vestfjarðadeildin eigi auðveldara með að komast. Hér er einn flottur á Arnarstapa
Svo er eitt annað mál, það er spurning með boli fyrir félagið, fá eitthvað lógó og láta gera boli fyrir Bleikjurnar, það yrði flott!
Ég ætla að tala við Stjána Lyngmo og athuga hvort hann vilji hanna eitthvað lógó fyrir okkur.
Látið mig vita hugsanir ykkar!
Með kveðju formaður Suðurlandsdeildar


2 Comments:
heyrheyr...
loksins að einhver nenni að skrifa, en ég er frekar fúl yfir hvað það eru fáir sem skoða síðuna okkar... búhú...
mér líst afar vel á þennan sumarbústað, það fylgir líka jeppi með
Skrifa ummæli
<< Home