þriðjudagur, febrúar 01, 2005

Niðurtalning í bústað

Ég finn fyrir fiðringi og eftirvæntingu fram í fingurgóma vegna væntanlegrar sumarbústaðaferðar.
Síðasta ferð var skemmtileg,en það er alltaf hægt að gera betur.
Það er eitt sem er að hrjá mig og það er, að æðsta bleikja Hafdís Gunn er staðsett á Vestfjörðum og veit ég eigi hvort hún sjái sér fært til að koma og fagna með okkur.
Ég er hér með nokkrar ástæður fyrir hana að koma:
1.Hún er ein af æðstu bleikjum og hefur vissum skyldum að gegna.
2.Það verða inntökupróf inn í félagið sem ómögulegt er að missa af!
3.Ýmsar skemmtilegar uppákomur verða (býst ég við he he)
4.Svo er þessi tiltekna bleikja skemmtileg og lætur okkur hlæja og finna fyrir yl í hjarta og viljum við endilega hafa hana með.
Því bið ég Hafdísi að skoða hug sinn og hjarta og athuga hvað hún ætlar að gera.

Ég hlakka mikið til og það er verið að brugga ýmislegt með þessi inntökupróf, það verður áhugavert og skemmtilegt fyrir fólkið að þreyta þessi próf og óheyrilega fyndið fyrir okkur að láta þau taka þau:-)

Annars er ég mjög ánægð með áhuga ungra stúlkna fyrir vestan á félaginu Bleikjunum, Hafdís Gunn er inn í þeim málum og heldur væntanlega bókhald yfir helstu sigra þeirra og verðleika. Við sjáum til hvermig verður með inngöngu, allir þurfa að þreyta próf og þær verða því að vera vel undirbúnar.

Það er ein spurning sem brennur á mér og það er hversu margir hafa skráð sig í þessa sumarbústaðaferð, já eða nei??
Gott væri að vita hversu mörg við verðum svo hægt sé að gera ráðstafanir út frá því.
Takk fyrir lesturinn



0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home