Fyrsta veiðiferð sumarsins.
Þá er komið að því að formaður Vestfjarðardeildar Bleikjanna skelli sér í veiðiferð og þá fyrstu í sumar. Það á að renna fyrir silung í Fljótavík ásamt því að drekka í sig óspilltu náttúruna sem gerist varla fallegri en á Hornströndum. Notast verður við spún enda formaðurinn ekki ennþá kominn upp á lagið með að beita flugunni, en óskað er eftir því að meðlimir Bleikjanna komi til með að leiðbeina mér seinna meir. Farið verður í fljót ásamt pabba, Jóni, Gunnari Atla, Shiran og Ingimari og verður lagt af stað á fimmtudagsmorguninn með bát. Þetta verður bara dagsferð og verður flogið til baka.
Eftir veiðina verður kíkt í kaffi til Boggu Venna sem er orðin ómissandi liður þegar kíkt er í Fljót.
Upplýsingar um aflann verða birtar hér eftir veiðiferðina.


1 Comments:
Megi veiðilukkan vera með þér:-)
Skrifa ummæli
<< Home