þriðjudagur, febrúar 08, 2005

The plan....

jæja vahú... sumarbústaða ferðin sem ákveðin var í október er loksins að renna í garð.
Þannig er planið... sækja þarf lyklana fyrir klukkan 22:00 á föstudaginn í einhvern skála við Úlfljótsvatn sem við hljótum að finna og við höfum bústaðinn til mánudags þannig að það þarf ekkert að flýta sér að ganga frá og skila snemma á sunnudeginum...
Á föstudaginn er ekki reiknað með sameiginlegum mat, hver tekur bara það sem hann vill borða ef sá hinn sami er ekki búinn að borða áður en lagt er af stað.
Á svæðinu eru 3 herbergi með 6 rúmum, þannig að þið pörin getið andað léttar. Það lítur allt út fyrir að þið fáið öll sér herbergi þannig að það er hægt að gera nóg af því að ..... uhu prjóna sokka...
Við hin sem erum svo væskilsleg að mæta ein með sjálfum okkur þurfum að sofa á svefnloftinu þar sem eru dýnur fyrir 4.
Þeir sem mæta í pörum fá að hafa sængurnar... (hvað er ekki gert fyrir ykkur) og þurfa þess vegna að mæta með sængurföt...
Við hin sem verðum á loftinu þurfum hins vegar að taka með okkur svefnpoka :)

Ætlunin er að elda eitthvað saman á laugardeginum, ??? hvort grillmeistarinn frá því í fyrra vilji ekki hvíla sig þetta árið og við stelpurnar skellum þá kannski læri eða hrygg í ofninn og eldum...??

Jæja þetta er nú það helsta.. svo bara muna, nóg af einhverju til að skála í á föstudaginn og til að skola niður lærinu á laugardeginum.... Annars er þetta allt svo mikið bindindisfólk að ég á ekki von á öðru... hehe

Í síðasta lagi þá er öll varsla gæludýra bönnuð í bústaðnum... bara svo þið vitið það.

Hlakka til að sjá ykkur á föstudaginn og sérstaklega formann Akureyrardeildar Herkúlesar... vona að formaður Vestfjarðadeildar bleikjanna sjái sér fært að mæta....

Varaformaður

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home