laugardagur, nóvember 26, 2005

Fussum svei!


Þessi síða er til háborinnar skammar! Það skoðar hana enginn og það skrifar enginn inn á hana!! En við getum þó huggað okkur við eitt kæru Bleikjur, við erum miklu betri í síðugerð heldur en vorir kæru félagar og karlrembur í Herkúles, sjáið síðuna þeirra hún er í algjörum lamasessi!! Þvílík hneisa........


En ég er ekki sátt við undirtektirnar fyrir fyrirhugaða sumarbústaðarferð eftir áramót,sem voru litlar sem engar, ja ég fer í sumarbústað sama hvað!! Hanna Rósa Einarsdóttir hefur gefið mér grænt ljós á það líka, hún verður þá væntanlega vígð inn í Bleikjurnar í leiðinni!
Jæja hér með kveður formaður Suðurlandsdeildar og njótið aðventunnar!!

1 Comments:

At 11:02 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

HÆ,HÓ ÉG HLAKKA TIL....... þegar ég fæ að taka þátt í vígslu háttvirtrar HÖNNU RÓSU í bleikjunar..... það verður bara gaman og endilega minna herkúles á að taka með sér hið skemmtilega leikfang "BONG" :-) .... en eru undirtektir ekki góðar fyrir bústaðarferð? ... ég fór af stað í huganum um leið og jólakort kom til mín, sem sagði að ferð væri fyrirhuguð... hver er með mótþróa.... við tæklum hann/hana/þau og tökum bara ekki annað í mál :-)
ein bleikja að sunnan

 

Skrifa ummæli

<< Home