föstudagur, júlí 01, 2005

Sumarið er tíminn

jú það er sagt en ekki hefur orðið mikið úr sumrinu enn sem komið er!!
Ég er þó farin að bíða með eftirvæntingu eftir veiðiferð okkar upp á Veiðivötn ásamt félögum okkar úr Herkúles. Ég sá ekki fram á að mæta í þá ferð sökum anna við lestur skólabóka um þetta leyti en eins og allir vita er skólabókalestur á sumrin fyrir vitleysinga og ég er ekki vitleysingur!! Þá er hitt málið eftir að redda mér fríi í vinnunni.....er að vinna í því, djöfull skal það takast svo ég geti gert eitthvað á þessu sumri.
Djöfull væri gott að veiða einn lax til að bjarga þessu sumri!! Annars er það aukaatriði bara hafa gaman að þessu og njóta samverunnar með vinum sínum er það ekki???
Ég hlakka alla vega mikið til í ágúst þá verður veiðiferð og ein bleikjan að fara að gifta sig með glamúr og glysi.
Já þetta verður stuð, ég hlakka alla vega mikið til!!

2 Comments:

At 3:15 e.h., Blogger Ofurhjúkka said...

heyr heyr... sammála. Búin að leggja inn pöntun hjá aðalmanninum um gott veður þessa helgi takk fyrir.. Er alltaf í garðinum heima að æfa köstin.. tíhí.. ætla að fá LAX...

 
At 2:59 f.h., Blogger Halla Maria said...

Það er svart útlitið fyrir að ég nái að redda mér fríi á þessum tíma! Þetta eru svartir dagar.......

 

Skrifa ummæli

<< Home