laugardagur, janúar 29, 2005

Ég er mætt á svæðið

Jæja þá vestfjarðardeild bleikjanna komin með aðgang að síðunni. Ég er að fara hitta hugsanlega verðandi meðlimi félagsins í kvöld og mun ég meta þá af kostgæfni. Ég mun síðan láta æðstubleikjurnar vita hvort að þessar stelpur séu þess verðugar að fá að þreyta bleikjuprófið. Þær sem ég mun meta í kvöld eru Kristín Hulda, Sunna og Heiða. Ég mun skrá hérna inn niðurstöður matsins og verður mál þeirra tekið fyrir á næsta ársfundi félagsins.

1 Comments:

At 8:41 f.h., Blogger Halla Maria said...

Gott að sjá að vestfjarðadeildin er orðin virk, ég tek ofan fyrir þér Dísa mín!
Jamm gott mál með matið. Eins og vitað er verða þreytt inntökupróf í sumabústaðaferðinni fyrir þá sem vilja ganga í félagið hérna á suðurlandinu.
Ég hlakka til að vita hvað kom út úr matinu á þessum stúlkum þarna fyrir vestan.
Með kveðju Halla bleikja

 

Skrifa ummæli

<< Home