Styttist óðum...
í sumarbústaðaferðina. Fólk er farið að rifja upp ferðina frá því 2003 með gleði í hjarta (sumir meira en aðrir) en ekki er hægt að neita því að sumt er ekki rifjað upp.. hehe.
Bjarki mágur er svo spenntur yfir því að fá KANNSKI inngöngu í félagið að hann leggur sig allan fram til að heilla herkules félagana. Mætti í partý á laugardaginn bara með bjór í lítersdósum, svo er hann búinn að liggja sveittur í símanum til að reyna að redda okkur skoðunarferð í ljósafossvirkjun þegar við förum í bústaðinn. Ég trúi ekki öðru en að hann fái inngöngu í félagið eftir að hafa þreytt ingöngupróf.
Við félagsmenn bleikjanna erum hins vegar sveittar yfir því að búa til inngöngupróf fyrir Þóru sem sótt hefur um að ganga í félagið, ákveðið hefur verið að láta hana vaða eld og brennistein ásamt öðru sem á örugglega eftir að skilja eftir ör á líkama og sál, hehe.
Annars vildi ég bara skrifa smá línu, virðist ekki vera mikið í gangi hér á síðunni...
Þangað til næst,
Hasta la vista babí


1 Comments:
Þetta verður stuð jííha!!
Það verða inntökupróf Bjarki og Þóra þreyta það með glæsibrag!
Þetta verður þorrablót bara líka:-)
Skrifa ummæli
<< Home