Þá er það ákveðið!
Jæja gott fólk!
Vegna mikilla anna undanfarin misseri hefur okkur ekki gefist tími til að pára hérna inn á þessa síðu en nú er ég reyna að taka mig á!
Nýjustu fréttir eru þær að fyrihuguð sumarbústaðarferð hefur verið flutt til, vegna gífurlegs álags sem hvílir á félögum og meðlimum helstu og bestu veiðifélaganna.
Það var ætlunin að fara núna í byrjun nóvember en það var ekki hægt.
Það verður farið að Úlfljótsvatni þann 21.janúar á föstudegi og komið heim 23.jan.
Þessi ferð er ætluð meðlimum Bleikjanna og Herkúlesar og jafnvel einhverra góðkunningja sem vilja slæðast með. Sýnið áhuga ykkar í athugasemdum eða gestabókinni.
Minni ég líka á það að hægt er að biðja um inngöngu í félagið með því að biðja fallega í gestabókinni eða með því að senda mér eða Ofurhjúkku e-mail.
Takk fyrir og kveð ég að sinni með von um góð viðbrögð við þessari ákvörðun.
Bless


4 Comments:
Þar sem ég hef FORMLEGA óskað eftir inngöngu í hið nýstofnaða veiðifélag BLEIKJURNAR er ég strax farin að hlakka til fyrirhugaðrar sumarbústaðarferðar. Einnig lofa ég að standa mig betur í fyrirhugaðri ferð en síðast þegar ég hitti meðlimi Herkúlesar og Bleikjanna :-) Þar með er ég einnig að lofa betrum fyrir karlhelminginn minn........
HAHAHA
Bíð spennt eftir nýju ári :-)
Hey stelpur, ef einhver vill fá inngöngu verður hún að vera samþykkt af stofnendum félagsins þ.e. af mér (Hafdís Gunn), Hrafnhildi og Höllu. Svo finnst mér að nýjir meðlimir verði að taka inngöngupróf.
Annað mál, hver var þetta sem skrifaði á undan mér og vildi fá inngöngu???
KV.
Dísa Gunn
Halló halló.... Þetta er Þóra systir...
Kallinn hennar hefur skotið hreindýr... hehe
Á ekki að mæta í sumarbústað í janúar...
Skyldumæting ;)
já ég er sammála með einhvers lags inntökupróf eða þá að fyllt verði út umsókn! Hafa fyrir því að komast inn í félagið;-)
Skrifa ummæli
<< Home