mánudagur, febrúar 06, 2006

Myndir, myndir! vííííííí

Jæja það eru komnar inn myndir úr sumó!

Það vantar myndir síðan á föstudeginum en hæstvirtur annar formaður vestfjarðardeildarinnar er með þær í tölvunni sinni. Ég reyni að kippa því í liðinn sem allra fyrst!

En kíkið á þetta!

Með kveðju
-halla maría

föstudagur, febrúar 03, 2006

Helgin var frábær í alla staði! Bústaðurinn var flottur, heiti potturinn stóð fyrir sínu og félagsskapurinn alveg frábær!

Við fórum svo á laugardeginum að skoða helli þarna nálægt sem heitir Víðgelmir og það var alveg magnað. Hann er 1580 m en við fórum einungis 200 metra inn í hann. Það er stundum farið alla leið og það tekur um 3-4 tíma en við létum okkur nægja klukkutíma leiðsögn. Ég set inn myndir fljótlega.

Á laugardagskvöldið var svo eldaður sameiginlegur matur, gómsæt læri sett á grillið og kaka í eftirrétt, þreytt voru inntökupróf inn í Bleikjurnar og horft á forkeppni Eurovision.
Þegar fór að líða á kvöldið færðist fjör í leikinn, spilað á gítar, sungið og farið í pottinn, frábær skemmtun!
Takk allir fyrir frábæra helgi!





Sunna er orðin bleikja!


Hanna Rósa er orðin bleikja!




Ég varð að prófa líka, áfengi með þrýstikrafti!

fimmtudagur, janúar 12, 2006

Bústaðarferð!

Jæja þá er búið að finna bústað eftir langa og stranga leit!! Ætlunin var að fara á Arnarstapa til að fólk vestan af fjörðum þyrfti ekki að keyra eins langt en það eina sem var í boði var bústaður í Húsafelli!

Dagsetningin var eitthvað að vefjast fyrir fólki líka en eina sem kom í raun til greina var síðasta helgin í janúar 27-29.Eitthvað verður víst um nýja félaga í þessari ferð og verða sennilega þá þreytt einhver inntökupróf og þau eru alltaf skemmtileg!

Hlakka til að sjá alla

fimmtudagur, desember 22, 2005

Jólahátið..

er send að renna í garð..
Kæru félagar nær og fjær, veiðifélagið Bleikjurnar senda félagsmönnum sínum hugheilar jóla og nýjárskveðjur og þakka stundirnar á árinu sem er að líða.
Með sérstakri þökk fyrir aflasama ferð í Veiðivötn í sumar og vígsluhátíð nýrra félaga við Úlfljótsvatn síðasta vetur.
Þá er það bara að fara strax í það eftir áramót að skipuleggja næstu vígsluhátíð/ferð i sumarbústað..

Með kærri jólakveðju
Hrafnhildur og Hafdís, formenn vestfjarðadeildar veiðifélagsins.

p.s. það er ekki aflinn sem skiptir máli heldur að vera með!!! :)

laugardagur, nóvember 26, 2005

Fussum svei!


Þessi síða er til háborinnar skammar! Það skoðar hana enginn og það skrifar enginn inn á hana!! En við getum þó huggað okkur við eitt kæru Bleikjur, við erum miklu betri í síðugerð heldur en vorir kæru félagar og karlrembur í Herkúles, sjáið síðuna þeirra hún er í algjörum lamasessi!! Þvílík hneisa........


En ég er ekki sátt við undirtektirnar fyrir fyrirhugaða sumarbústaðarferð eftir áramót,sem voru litlar sem engar, ja ég fer í sumarbústað sama hvað!! Hanna Rósa Einarsdóttir hefur gefið mér grænt ljós á það líka, hún verður þá væntanlega vígð inn í Bleikjurnar í leiðinni!
Jæja hér með kveður formaður Suðurlandsdeildar og njótið aðventunnar!!

fimmtudagur, september 01, 2005

Vetrardagskrá

Komið sæl og blessuð!
Takk fyrir samveruna í Veiðivötnum þetta var mikið gaman og lang flestir veiddu eitthvað sem er alltaf gott!

Hæstvirta bleikja Hafdís Gunn er líka komin í hnapphelduna sem er mikið gaman og þó að Bleikjurnar séu harðar af sér,voru felld nokkur tár í tilefni þess!
Við þökkum henni fyrir frábæra veislu og fyrir að vera svona fín stelpa. Kannski er lítil bleikja á leiðinni......??? he he he

Þá að öðrum málefnum
Ég er komin með hugann langt fram í tímann eins og venjulega og er farin að spá í hinni árlegu sumarbústaðaferð okkar Bleikjanna og Herkúlesar.
Hvert skal fara?
Hvenær á að fara, fyrir eða eftir áramót?
Hvernig líst ykkur á að mætast á miðri leið, til dæmis finna bústað á Snæfellsnesi svo Vestfjarðadeildin eigi auðveldara með að komast. Hér er einn flottur á Arnarstapa

Svo er eitt annað mál, það er spurning með boli fyrir félagið, fá eitthvað lógó og láta gera boli fyrir Bleikjurnar, það yrði flott!
Ég ætla að tala við Stjána Lyngmo og athuga hvort hann vilji hanna eitthvað lógó fyrir okkur.

Látið mig vita hugsanir ykkar!
Með kveðju formaður Suðurlandsdeildar

fimmtudagur, ágúst 11, 2005

Veiðivötn

Þá er komið að því!

Við hittumst á morgun tilbúin í veiðiferð ársins!

Ég er búin að fjárfesta mér í vöðlum og er því fær í flestan sjó.

Ég óska okkur góðrar veiði, drykkju og átu um helgina!

Ég vil skila kveðjum til þeirra sem sáu sér ekki fært að mæta og vona eindregið að þið verðið með okkur næst þegar Bleikjurnar og Herkúles koma saman.
Hafdís Gunn, Kiddi og Kristján Lyngmo, ykkar verður sárt saknað!

Það er alltaf sumarbústaðarferð á næsta ári.

kær kveðja
Formaður suðurlandsdeildarinnar