miðvikudagur, september 22, 2004

Upphafspistill

Þá er komið að því, Bleikjurnar eru komnar með heimasíðu enda kominn tími til.
Það er best að byrja á því að segja aðeins frá þessu félagi, þannig er mál með vexti að í október 2003 var farið í sumarbústaðaferð með veiðifélaginu Herkúles sem er strákaveiðifélag, við stelpurnar fengum að koma með, með því skilyrði að við yrðum í bikini í heita pottinum á svæðinu. Við urðum nú ekkert voðalega sáttar enda aukakíló á hverjum krók og kima og þar að auki var þetta karlmannleg kúgun eins og hún gerist best!
Við ákváðum því að stofna okkar eigið veiðifélag fyrir stelpur en þó í góðu samstarfi við Herkúles og þeirra karlrembu takta. Þannig var formlega stofnað okkar stelpuveiðifélag eftir þessa sumarbústaðarferð. Þaðmá búast við ýmsum skemmtilegum veiðisögum og pistlum hér á þessari síðu, væntanlega verður farið í einhverjar sameiginlegar ferðir með félögum vorum úr Herkúles og sagt verður ítarlega frá þeim ferðum og vonandi einnig í myndrænu formi. Stelpur geta líka veitt!! Takk fyrir og njótið vel.

6 Comments:

At 10:02 e.h., Blogger Ofurhjúkka said...

Heyr heyr....

 
At 10:02 e.h., Blogger Ofurhjúkka said...

Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

 
At 10:06 e.h., Blogger Halla Maria said...

Þetta er flott mar!

 
At 7:33 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Stelpur geta líka veitt? hvað á það að þýða? ég hélt að þið færuð með bara til að elda veiðina hjá okkur strákunum:) nei nei til lukku og vonandi gangi ykkur vel með veiðina.
Hilsen

 
At 9:31 e.h., Blogger Ofurhjúkka said...

Það er bannað að skrifa nafnlaust... við í veiðifélaginu erum alltof forvitnar til að leyfa það...

 
At 10:42 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hver heldur þú að þetta er Hrabba? hver segir ,,Hilsen"
kk
Gunnar

 

Skrifa ummæli

<< Home