Vinsældir!
Mig langar að þakka frábærar viðtökur við þessari síðu, ég hef ekki fengið frið heima fyrir aðdáendum, konum sem eru kúgaðar heima hjá sér af eiginmanni og fá ekki að fara með í veiðiferðir öðruvísi en að smyrja brauð á bakkanum og nudda axlir.
Við þessar konur segi ég að bráðum verður hægt að sækja um aðild að þessu veiðifélagi og munum við auglýsa það hérna á síðunni.
Myndasíða verður einnig vonandi sett inn fljótlega og þá getið þið fylgst með okkur í veiði og drykkju. Svo er næst á dagskrá hjá okkur að fara í sumarbústaðaferð með góðvinum okkar úr Herkúles, þetta verður gert árlega og áætlað er að fara núna einhvern tíma í október, (auglýst síðar).
Bráðum koma svo aflatölur sumarsins hjá meðlimum og helstu afrek okkar kjarnakvennanna, þá þakka ég fyrir í dag og eigiði góða helgi.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home