Við höngum í lausu lofti
Ég ætla bara að tilkynna öllum þeim brjáluðu Bleikjuaðdáendum, að sumarbústaðaferðinni hefur verið frestað til óákveðins tíma en hún verður sennlega í febrúar.
Það kom upp ósætti vegna fyrirhugaðrar dagsetningar og dagsetning verðutilkynnt síðar eftir að við höfum fundað.
Annars hef ég ekki fengið neinn netpóst um skráningu eða komment hér á síðuna, ég veit hvað mitt heimafólk (maður/Þórólfur)ætlar að gera en með allt hitt fólkið veit ég ekki, ja nema að sjálfsögðu hin hæstvirta Hrafnhildur. Hún er víst að fara að leita á önnur mið eða þá vestur á firði þannig þetta er tilvalið tækifæri til að skemmta sér ærlega með stúlkunni í skemmtilegustu sumarbústaðaferð ársins 2005!!
Þá hef ég þetta ekki lengra í þetta sinn.
Veriði sæl og góða helgi


1 Comments:
Jeminn æðislegar myndir, fæ alveg firðing í magann við þetta flashback... vonandi finnum við annan tíma fyrir þessa blessuðu ferð, ef einhver kemst ekki þá þá verður bara að hafa það, nenni ekki að breyta þessu aftur...
Ég hlakka svo til, ég hlakka alltaf svo til... tíminn er svo lengi að líða.... lalalalala
Skrifa ummæli
<< Home